61 - 74 sæta bílar
SBA-Norðurleið rekur rúmlega 60 vel búna hópferðabíla, 9-74 farþega að stærð. Meðal búnaðar í bílunum er öryggisbelti, hallanleg sæti, sjónvörp, myndbandstæki, geislaspilarar og fleiri þægindi. Starfsmenn SBA-Norðurleiðar leggja metnað sinn í að bjóða viðskiptavinum fyrirtækisins vel búna bíla, jafnt til sumar- og vetraraksturs. Af rúmlega 60 hópferðabílum SBA-Norðurleiðar eru 7 öflugir fjórhjóladrifnir bílar, sem eykur enn á öryggið í vetrar- og fjallaferðum.