SBA - Norðurleið á bílasýningu

Síðast liðna helgi var bílaumboðið Askja, sem m.a. er með umboð fyrir Mercedes Benz á Íslandi, með opið hús.
Til sýnis voru rútur, vörbílar, sendibílar og margt fleira. Einn af nýrri bílum SBA var þar til sýnis en um er að ræða
Mercedes Benz Tourismo árgerð 2009 EURO 5. Bíllinn er 55+1 sæti og búinn öllum helstu þægindum.
Reiknað var með að um 400 manns hafi mætt á svæðið og aðstandendur voru ánægðir með árangurinn.