Um Sérleyfisbíla Akureyrar - Norðurleið hf.
Fyrirtækið SBA-Norðurleið hf. er reist á gömlum og rótgrónum grunni. Sérleyfisbílar Akureyrar hf. voru stofnaðir árið 1990 upp úr hópbifreiðadeild sem Ferðaskrifstofa Akureyrar hafði rekið í tugi ára. Þann 1. febrúar 2001 keyptu Sérleyfisbílar Akureyrar hf. hópferðabíla og hluta af rekstri Norðurleiðar-Landleiða og upp frá því var sett á fót starfsstöð í Reykjavík og nafni fyrirtækisins var breytt í Sérleyfisbílar Akureyrar - Norðurleið hf. eða SBA-Norðurleið, eins notað er dags daglega. Norðurleið hafði verið stofnað um 1950 þannig að þar var um rótgróið fyrirtæki að ræða. Þann 1. maí 2001 sameinuðust svo SBA-Norðurleið hf. og hópbifreiðadeild BSH ehf. á Húsavík undir nafni SBA-Norðurleiðar hf. Starfsstöðvar fyrirtækisins eru tvær, þ.e. á Akureyri og í Reykjavík. Aðalskrifstofur fyrirtækisins eru á Akureyri.
Hjá fyrirtækinu starfa um 40 manns árið um kring en yfir sumartímann starfa yfir 100 manns hjá fyrirtækinu.
SBA-Norðurleið sérhæfir sig í fólksflutningum. Fyrirtækið annast meðal annars áætlunarakstur á sumrin milli Akureyrar og Reykjavíkur um Kjöl, milli Mývatns og Húsavíkur og frá Akureyri að Ásbyrgi, Hljóðaklettum, Dettifossi og Kröflu, svo að eitthvað sé nefnt. Einnig annast fyrirtækið hvers kyns hópferðaakstur, skólaakstur og reglubundinn akstur á styttri leiðum.
Umfang fyrirtækisins er mest yfir sumarið, enda akstur ferðamanna einn helsti þjónustuþáttur SBA-Norðurleiðar. Fyrirtækið tekur þannig að sér akstur með hópa, jafnt erlenda sem innlenda ferðamenn en býður auk þess upp á skipulagðar hópa- og skoðunarferðir.
Eitt af stórum verkefnum SBA-Norðurleiðar er akstur með farþega úr erlendum skemmtiferðaskipum sem hafa viðdvöl hér á landi. Bæði er um að ræða akstur með hópa út frá Akureyri og Reykjavík.
SBA-Norðurleið hefur yfir 60 hópferðabifreiðum að ráða í daglegum rekstri og er
fyrirtækið eitt hið stærsta sinnar tegundar hér á landi. Stefna fyrirtækisins er að bjóða farþegum sínum upp á vandaðar bifreiðar og góða þjónustu.
Eigendur fyrirtækisins eru Gunnar M. Guðmundsson, Magnús Einarsson, Ferðaskrifstofan Atlantik, Guðni Þórólfsson, Bergþór Erlingsson, og Hjördís Úlfarsdóttir.