Óvissuferðir, hvataferðir, hópefli og fleira
Practical veitir framúrskarandi og fjölbreytta þjónustu til fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka í samstarfi við SBA - Norðurleið. Boðið er upp á skipulagningu skemmtiferða, hvataferða, vinnuferða og ýmissa sérferða. Markmið Practical er að sinna hverjum og einum viðskiptavini á sem persónulegastan hátt og hefur á að skipa mjög hæfu starfsfólki með fjölbreytta reynslu og menntun.