SBA 1a: Mývatn skoðunarferð


Tímabil: 1/6 - 30/9 2012

Brottför: Frá Upplýsingamiðstöðinni Reykjahlíð kl.12:30
Ver:ð: 6.100 kr. Ath. ef bókað er á netinu fæst 10% afsláttur.

Börn 4-11 ára: 50% afsláttur. Ókeypis fyrir börn undir 4 ára aldri.





Mývatnssveit er víðfræg fyrir fjölbreytilega náttúrufegurð. Þessi skoðunarferð hefst við Upplýsingamiðstöðina  kl. 12:30. Fyrst er haldið austur yfir Námaskarð og upp að Kröflu, framhjá fyrstu alvöru gufuaflsvirkjun íslendinga upp að sprengigígnum Víti í hlíðum Kröflu. Myndun hans markaði upphaf Mývatnselda árið 1724. Frá Víti er gott útsýni að Leirhnjúk og hraununum sem runnu í Kröflueldum 1975 til 1984. Þá er haldið til baka niður að leirhverunum á Hverarönd. Þaðan er haldið að Grjótagjá sem var fyrir Kröfluelda einn af vinsælli stöðum við Mývatn. Eftir stutt stopp er ekið áfram gegnum hraunið að síðasta viðkomustað þessarar skoðunarferðar, sjálfum Dimmuborgum með öllum sínum stórkostlegu hraunmyndunum. Ferðin endar með viðkomu í Jarðböðunum. Áætluð brottför þaðan er um kl: 16:00