SBA 2a: Perlur Norðursins via Mývatn

 

Mývatn - Krafla - Dettifoss - Ásbyrgi - Húsavík


Tímabil: 18/6 - 31/8  2012 (Fer eftir ástandi vega) 

Brottför:  Frá Upplýsingamiðstöðinni að Reykjahlíð
Lengd: 6,5 klst.
Verð: 10.200 kr. Athugið að 10% afsláttur fæst ef bókað er á netinu.
Börn 4-11 ára: 50% afsláttur. Ókeypis fyrir börn undir 4 ára aldri.


 


Áætlunarferð á leið númer 661 fer kl.11:30 frá Upplýsingamiðstöðinni í Reykjahlíð. Fyrst er haldið austur yfir Námaskarð og upp að Kröflu, framhjá fyrstu alvöru gufuaflsvirkjun íslendinga, Kröfluvirkjun, upp að sprengigígnum Víti. Myndun hans markaði upphaf Mývatnselda árið 1724. Við Víti er stoppað í nokkrar mínútur. Héðan er gott útsýni að Leirhnjúk og hraununum sem runnu í Kröflueldum 1975 til 1984. Frá Víti er haldið til baka niður á þjóðveg 1, ekið eftir honum austur á Mývatnsöræfi og beygt inn á Dettifossleiðina sem liggur vestan Jökulsár. Að Dettifossi, aflmesta fossi Evrópu, er komið um kl. 13:00 Klukkan 14:00 er skipt um bíl og haldið áfram (með leið nr. 641a) að Hljóðaklettum sem eru víðfrægir fyrir hið margbreytilega stuðla- og rósaberg sem einkennir þessar fornu gígarústir. Hér er stoppað í u.þ.b. hálftíma áður en haldið er niður í Ásbyrgi sem þjóðsagan segir að sé fótspor Sleipnis, hins áttfætta hests ássins Óðins. Óvíða á Norðurlandi er gróður meiri og fjölbreyttari en í Ásbyrgi. Úr Ásbyrgi er svo ekið fyrir Tjörnes til Húsavíkur þar sem skipt er um í bíl á leið 650a aftur til Reykjahlíðar við Mývatn.