Dettifoss - Ásbyrgi
Tímabil: 18/6 - 31/8 2010
Brottfararstaðir: Akureyri og Húsavík
Verð:
Frá Akureyri 10.500 kr.
Frá Húsavík 8.600 kr. Athugið að 10% afsláttur fæst ef bókað er á netinu.
Börn 4-11 ára: 50% afsláttur. Ókeypis fyrir börn undir 4 ára aldri.
Akureyri - Húsavík - Ásbyrgi - Dettifoss - Hljóðaklettar - Ásbyrgi - Húsavík - Akureyri
Farið er með áætlunarbifreið um Húsavík að þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum, sem býr yfir einstökum krafti, er ákaflega heillandi og ríkur af andstæðum. Dvalist er í hálfa klukkustund í Ásbyrgi, sem er eins og far eftir hóf í lögun, en þar skartar heimskautagróður sínu fegursta og friðsæl tjörn hvílir í skjóli tröllaukinna hamra, sem mynduðust í hamfarahlaupi endur fyrir löngu. Farið er að Dettifossi, stærsta fossi Evrópu, 44 metra háum og 100 metra breiðum, þar sem allt að 1500 tonn af vatni, aur og sandi ryðjast niður í áhrifamesta gljúfur Íslands. Eftir klukkustundarviðdvöl heldur rútan áfram niður í Hljóðakletta, en þeir eru heimsþekktir fyrir stuðlabergsmyndanir, sem einkenna þessa fornu gígaröð. Hægt er að ganga um ævintýralega klettana í um 30 mínútur áður en haldið er aftur í Ásbyrgi. Á leiðinni aftur til Akureyrar er stoppað örstutt á Húsavík, fallegum fiskibæ sem orðinn er heimsþekktur fyrir hvalaskoðun.
Athugið! Tengiferð frá Dettifossi til Mývatns og þaðan til Akureyrar eða Húsavíkur.
Akureyri - Húsavík - Ásbyrgi - Dettifoss:
Dettifoss - Ásbyrgi - Húsavík - Akureyri: