Mývatn (Sumaráætlun)
Tímabil: 1/6 - 30/9 2010
Brottför: Frá Akureyrarflugvelli 08:05// 08:30 um helgar
Brottför: Frá upplýsingamiðstöð 08:15.
Verð: 10.500 kr. Ath. ef bókað er á netinu fæst 10% afsláttur.
Börn 4-11 ára: 50% afsláttur. Ókeypis fyrir börn undir 4 ára aldri.

Mývatnsferð I
Mývatnssveit er víðfræg fyrir fjölbreytilega náttúrufegurð. Í þessari níu tíma ferð sem hefst við Umferðarmiðstöðina á Akureyri kl. 08:30 gefst tækifæri til að sjá það helsta undir leiðsögn kunnugs leiðsögumanns. Fyrst er ekið norður Svalbarðsströnd, austan Eyjafjarðar og austur yfir Víkurskarð. Þaðan er komið niður í Fnjóskadal og ekið áfram austur í gegnum Ljósavatnsskarð. Fyrsta stopp í þessari ferð er við Goðafoss. Hann er ekki aðeins einn af okkar fallegustu fossum, heldur líka tengdur sögu Íslands í því mikilvæga máli, kristnitökunni. Frá Goðafossi er haldið sem leið liggur áfram austur yfir Fljótsheiði og um Reykjadal að Skútustöðum í Mývatnssveit. Þar eru afar reglulegir gerfigígar sem vert er að veita athygli. Þaðan er haldið meðfram suðurströnd Mývatns að þorpinu í Reykjahlíð þar sem tekið er hádegishlé. Eftir að hafa notið gestrisni mývetninga er haldið austur yfir Námaskarð og upp að Kröflu, framhjá fyrstu alvöru gufuaflsvirkjun íslendinga, upp að sprengigígnum Víti. Myndun hans markaði upphaf Mývatnselda árið 1724. Frá Víti er gott útsýni að Leirhnjúk og hraununum sem runnu í Kröflueldum 1975 til 1984. Þá er haldið til baka niður að leirhverunum á Hverarönd. Þaðan er haldið að Grjótagjá sem var, fyrir Kröflu-elda, með vinsælli stöðum við Mývatn. Eftir stutt stopp er ekið áfram gegnum hraunið að síðasta viðkomustað þessarar skoðunarferðar, sjálfum Dimmuborgum með öllum sínum stórkostlegu hraunmyndunum. Eftir stutt kaffihlé í Reykjahlíð er haldið til baka til Akureyrar þangað sem komið er skömmu fyrir kl. 17:30.
Leiðsögn er innifalin í verði ferðarinnar en athugið að engar veitingar eru innifaldar.
Mývatnsferð II 
Mývatnssveit er víðfræg fyrir fjölbreytilega náttúrufegurð. Þessi skoðunarferð hefst við Upplýsingamiðstöðina kl. 12:30. Fyrst er haldið austur yfir Námaskarð og upp að Kröflu, framhjá fyrstu alvöru gufuaflsvirkjun íslendinga upp að sprengigígnum Víti í hlíðum Kröflu. Myndun hans markaði upphaf Mývatnselda árið 1724. Frá Víti er gott útsýni að Leirhnjúk og hraununum sem runnu í Kröflueldum 1975 til 1984. Þá er haldið til baka niður að leirhverunum á Hverarönd. Þaðan er haldið að Grjótagjá sem var fyrir Kröfluelda einn af vinsælli stöðum við Mývatn. Eftir stutt stopp er ekið áfram gegnum hraunið að síðasta viðkomustað þessarar skoðunarferðar, sjálfum Dimmuborgum með öllum sínum stórkostlegu hraunmyndunum. Ferðin endar með viðkomu í Jarðböðunum. Áætluð brottför þaðan er um kl: 16:00