Mývatn vetur og vor
Brottfarartími Mán-Mið og Föstudaga kl. 08:05 frá Akureyrarflugvelli og 08:15 Umferðarmiðstöðinni á Akureyri
Tímalengd: 8 klst.
Lágmarks farþegafjöldi: 3 fullborgandi farþegar
Innifalið: Akstur og leiðsögn
Gildistími: 01.10 2009 - 31.05 2010
Verð:10.000,- ISK
Börn 4 til 11 ára fá 50% afslátt
Börn 0 til 3 ára fá frítt
Engar veitingar er innifaldar
Þessi 8 klukkustunda langa skoðunarferð um Mývatn og sveitir Þingeyjarsýslu að vetrarlagi miðar að því að sýna farþegum eina helstu náttúruperlu landsins.
Fyrst er ekið norður Svalbarðsströnd, austan Eyjafjarðar og austur yfir Víkurskarð. Þaðan er komið niður í Fnjóskadal og ekið áfram austur í gegnum Ljósavatnsskarð. Fyrsta stopp í þessari ferð er við Goðafoss. Hann er ekki aðeins einn af okkar fallegustu fossum, heldur líka tengdur sögu Íslands í því mikilvæga máli, kristnitökunni. Frá Goðafossi er haldið sem leið liggur áfram austur yfir Fljótsheiði og um Reykjadal að Skútustöðum í Mývatnssveit. Þar eru afar reglulegir gervigígar sem vert er að veita athygli. Þaðan er haldið meðfram suðurströnd Mývatns að þorpinu í Reykjahlíð. Eftir hádegisverðarstopp í Reykjahlíð er ekið austur yfir Námaskarð og upp að Kröflu, framhjá fyrstu alvöru gufuaflsvirkjun íslendinga, upp að sprengigígnum Víti. Myndun hans markaði upphaf Mývatnselda árið 1724. Frá Víti er gott útsýni að Leirhnjúk og hraununum sem runnu í Kröflueldum 1975 til 1984. Þá er haldið til baka niður að leirhverunum á Hverarönd. Þaðan er haldið að Grjótagjá sem var, fyrir Kröflu-elda, með vinsælli stöðum við Mývatn. Eftir stutt stopp er ekið áfram gegnum hraunið að síðasta viðkomustað þessarar skoðunarferðar, sjálfum Dimmuborgum með öllum sínum stórkostlegu hraunmyndunum. Eftir góðan dag í Mývatnssveitinn er farþegum gefin kostur að heimsækja Jarböðin áður en haldið er aftur til Akureyrar þar sem að farþegum er annað hvort ekið á flugvöllinn eða að Umferðarmiðstöðinni.
