Vatnajökulsþjóðgarður

Tímabil: Mánudagar  5/7 - 16/8 2010
Brottfararstaðir: Hafnarstræti 82  Akureyri og Upplýsingamiðstöðin í Reykjahlíð við  Mývatn
Verð:
Frá Akureyri 29.000 kr.
Frá Mývatni 29.000 kr. Athugið að 10% afsláttur fæst ef bókað er á netinu.
Börn 4-11 ára: 50% afsláttur. Ókeypis fyrir börn undir 4 ára aldri.

 

 


Akureyri - Mývatn -  Herðubreiðarlindir - Askja - Kverkfjöll - Vatnajökull- Mývatn - Akureyri 

Þessari þriggja daga ferð er ætlað að veita ferðalöngum tækifæri á að kynnast af eigin raun óblíðri náttúru lands sem stöðugt er verið að móta og breyta af hinum geigvænlegu öflum elds og ísa. Lagt er upp í ferðina frá Mývatnssveit.. Sláandi andstæður heilla ferðalanga þegar haldið er eins og leið liggur til Öskju, um landsvæði eyðimarka og eldfjalla. Í miðri grárri og gróðurlausri auðninni er komið að vininni í Herðubreiðalindum. Síðan er haldið í Drekagil og þaðan að eldstöðinni frægu Öskju. Eftir þrjátíu mínútna göngu í hlíðum Öskju er komið í gíginn Víti, en þar er tilvalið að fá sér sundsprett í  heitu vatninu. Frá Öskju er haldið til Kverkfjalla. Um kvöldið er komið í áfangastað, Kverkfjöll, en þar er dvalist næstu tvær nætur, í Sigurðarskála eða á tjaldsvæði við skálann. Á öðrum degi gefst þátttakendum í ferðinni kostur á að fara í gönguferð að og á  Vatnajökll undir leiðsögn reyndra landvarða. Í Kverkfjöllum hafa heitir hverir myndað íshella undir síbreytilegum jöklinum. Frá hellismunnunum er gengið um landslag sem mótað er af hinu sér stæða samspili elds og íss. Takmark okkar er að komast á tindinn, sem er í 1840 metra hæð yfir sjávarmáli, en þaðan er geisifagurt útsýni. Á þriðja degi er lagt upp frá Kverkfjöllum og haldið í Hvannalindir og Möðrudal og svo áfram Mývatns og Akureyrar

 

Athugið að nauðsynlegt er að vera vel búinn til fararinnar. Taka þarf með hlý föt, góðan skófatnað og mat til þriggja daga. Athugið að gönguferðirnar eru langar og geta stundum reynt á.Landverðir útvega mannbrodda og göngustafi, en ef þátttakendur eiga slíkan búnað er sjálfsagt að nota sinn eigin.

Veitingar eru ekki innifaldar í verðinu.Eldunaráhöld eru í skála.  Hægt er að velja um tjald eða skálagistingu sem ekki er innifalin í verðinu.



Gisting í skála 2010 kr. 4.200 nóttin á mann.

Gísting á tjaldsvæði  kr.  900 nóttin á mann.


Brottför:
Mánudaga frá Akureyri og Mývatni.