Drangey - Kvöldsigling, 11. júní
Sannkölluð ævintýraferð um heillandi náttúru og söguslóðir.
































Förum á smárútu með ökuleiðsögumanni frá Akureyri til Sauðárkróks og tökum stutt þægindastopp á Sauðárkróki fyrir siglingu. Eftir að komið er um borð í bátin sem flytur okkur út í Drangey er leiðsögn í höndum heimamanna sem gjörþekkja sögu og lífríki eyjunnar.
Reikna má með að ferðin út í Drangey taki um fjórar klukkustundir. Sjálf siglingin er þægileg, tekur 30 mín hvora leið og oftar en ekki láta hvalir og selir sjá sig á leiðinni. Eyjan er einstök náttúruperla í miðju Skagafjarðar, nálægðin við fjölbreytt fuglalífi í bjarginu er mikil og þaðan er frábært útsýni yfir allan fjörðinn.
Ferðaáætlun
Drangey - kvöldsigling
Brottför frá Akureyri. Ekið til Sauðárkróks og siglt þaðan út í Drangey.
- Brottför seinni part dags frá Akureyri.
- Siglingin frá Sauðárkróki út í Drangey tekur um 30 mínútur.
- Skoðunarferðin um eyjuna tekur 2-3 klst.
Upphafsstaður
Hvað þarf að taka með
- Góðir skór.
- Fatnaður sem hæfir veðri.
- Nesti.
Flokkar
- Bus or minivan tour
- Cultural and theme tours
- Day trips and excursions
- Walking tour
- Birdwatching
- Sailing or boat tour