Stuðlagil og Möðrudalur á Fjöllum 16. júlí 2022
Tvær frábærar náttúruperlur á einum degi.












































Farið frá Akureyri kl. 08:00 og ekið austur á Jökuldal. Stoppað á Skjöldólfsstöðum þar sem hægt verður að kaupa hádegishressingu. Því næst ekið sem leið liggur upp á Efri-Jökuldal og gengið eftir slóða frá Stuðlafossi að Stuðlagili en um fremur létta 6 km göngu er að ræða.
Eftir gönguna er haldið af stað í áttina til Akureyrar. Fyrst er stutt þægindastopp á Skjöldólfsstöðum en síðan ekið um Fjallgarðana, þ.e. gömlu leiðina í Mörðrudal á Fjöllum. Dvalið í um það bil eina klukkustund í Fjallakaffi þar sem hægt verður að kaupa veitingar og skoða sig um á staðnum.
Að lokum verður ekið sem leið liggur til Akureyrar en áætlaður komutími þangað er um kl. 20:00.
Ferðaáætlun
Stuðlagil og Möðrudalur á Fjöllum
Viðkomustaðir í ferðinni:
- Mývatnssveit - þægindastopp
- Skjöldólfsstaðir
- Stuðlafoss og Stuðlagil
- Möðrudalur á Fjöllum
Upphafsstaður
Hvað þarf að taka með
- Fatnaður sem hæfir veðri og aðstæðum.
- Góðir gönguskór.
- Göngustafir geta komið sér vel.
- Nesti og drykkir.
Tungumál leiðsögumanns
- Íslenska