Sturlungaslóðir í Skagafirði, 25. júní 2022




























Dagsferð á Sturlungaslóðir í Skagafirði. Leiðsögumaður er Sigurður Hansen bóndi í Kringlumýri. Viðkomustaðir:
- Örlygsstaðir
- Víðimýri
- Sögusetrið 1238 á Sauðárkróki
- Hólar í Hjaltadal
- Kakalaskáli og sögusvið Haugsnesbardaga
Ferðaáætlun
Ekið vestur í Skagafjörð. Við Örlygsstaði tekur leiðsögumaðurinn á móti hópnum, kynnir staðhætti og fer yfir sögusviðið. Frá Örlygsstöðum liggur leiðin í Víðimýri, gamalt höfuðból þar sem meðal annars bjuggu höfðingjar af ætt Ásbirninga. Því næst verður farið á Sögusetrið 1238 á Sauðárkróki. Sýningin Baráttan um Ísland 1238 er gagnvirk og í gegnum sýndarveruleika geta gestir stigið inn í sögu Sturlungaaldar og tekið þátt í átakamestu atburðum Íslandssögunnar. Því næst verður farið heim að Hólum í Hjaltadal sem er eitt elsta menningar- og menntasetur landsins. Síðasti viðkomustaður dagsins er Kakalaskáli en þar er áhugaverð sögu- og listasýning sem túlkar átakatíma 13. aldar.
Áætluð koma til Akureyrar er um kl. 18:00.
Innifalið í ferðinni auk fargjalds og leiðsagnar:
- Aðgangur að Víðimýrarkirkju
- Aðgangur að sýningunni Baráttan um Ísland 1238
- Aðgangur að Kakalaskála
Upphafsstaður
Hvað þarf að taka með
- Nesti og drykki
- Fatnað í samræmi við veður
- Þægilega skó
Tungumál leiðsögumanns
- Íslenska