Fara í efni

Framúrskarandi fyrirtæki

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn og var listinn var nú unninn í tíunda sinn í ár. Framúrskarandi fyrirtæki byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag fjárfesta og hluthafa. Það er því eftirsóknavert að skara fram úr. 

Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði sem eru listuð hér að neðan.

  • Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1, 2 eða 3
  • Ársniðurstaða var jákvæð rekstrarárin 2016–2018
  • Ársreikningi fyrir rekstrarárið 2018 var skilað á réttum tíma skv. lögum
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) var jákvæður rekstrarárin 2016–2018
  • Ársreikningi var skilað til RSK fyrir rekstrarárin 2016–2018
  • Framkvæmdastjóri er skráður í fyrirtækjaskrá RSK
  • Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
  • Eiginfjárhlutfall var a.m.k. 20% rekstrarárin 2016–2018
  • Rekstrartekjur voru a.m.k. 50 milljónir króna rekstrarárin 2017 og 2018
  • Eignir voru a.m.k. 100 milljónir krónur rekstrarárin 2017 og 2018 og a.m.k. 90 milljónir króna rekstrarárið 2016