Fara í efni

Öryggisstefna

Öryggi er SBA-Norðurleið efst í huga þegar kemur að fólksflutningum í hópferðabílum. 

ÖRYGGISBELTI
Samkvæmt íslenskum lögum er farþegum í hópferðabifreiðum skylt að nota öryggisbelti sé bifreiðin þannig útbúin. Allar hópferðabifreiðar SBA-Norðurleiðar eru útbúnar með öryggisbeltum og hvetur fyrirtækið alla farþega til að sitja með öryggisbeltin spennt á meðan bifreiðar eru á ferðinni.

FYRSTA HJÁLP
Allar hópferðabifreiðar SBA-Norðurleiðar eru útbúnar með sjúkrakössum. Kassarnir eru reglulega skoðaðir og endurfylltir eftir þörfum af sérhæfðum aðilum. Það er hluti af daglegri ökutækjaskoðun bílstjórans að kanna hvort sjúkrakassinn sé tilbúinn til notkunar.

SLÖKKVITÆKI
Allar hópferðabifreiðar skulu vera útbúnar slökkvitæki samkvæmt umferðarlögum. Hópferðabifreiðar SBA-Norðurleiðar eru allar útbúnar tveimur slökkvitækjum sem eru innsigluð og yfirfarin af sérhæfðum aðilum árlega.

ÖRYGGISBÚNAÐUR
Í öllum bifreiðum fyrirtækisins er að finna öryggisvesti, viðvörunarþríhyrning og vasaljós. Í öllum bifreiðunum er farsími svo yfirmenn geti náð í bílstjórann þegar þess gerist þörf. Í bifreiðunum er GPS flotastýringarkerfi og því geta yfirmenn fylgst með nákvæmri staðsetningu bifreiðanna og ökuhraða þeirra í rauntíma. Fyrirtækið getur einnig látið viðskiptavini sína vita hvar bíllinn er staðsettur öllum stundum og hversu langa vegalengd hann hefur ferðast.

VIÐHALD BIFREIÐANNA
Það er yfirlýst stefna fyrirtækisins að bifreiðar þess séu ávallt í sem bestu ástandi. Allt viðhald er í höndum viðgerðarteymis fyrirtækisins og viðhaldsskrá er haldin af yfirmanni verkstæðis. Hópferðabifreiðar verða að standast reglubundna bifreiðaskoðun á hverju ári til að viðhalda hópferðaleyfi sínu.

STARFSFÓLK
Allir bílstjórar hafa tilskilin ökuréttindi fyrir það ökutæki sem ekið er hverju sinni. Ökuskirteini er athugað þegar nýjir bílstjórar eru ráðnir. Sérstök ökuskírteinaskrá er haldin til að tryggja að öll ökuréttindi séu í gildi. Bílstjórar fyrirtækisins sækja reglulega endurmenntunarnámskeið í skyndihjálp auk þess sem þeir hafa farið á akstursnámskeið á vegum Mercedes-Benz í Þýskalandi. SBA-Norðurleið áskilur sér rétt til að kanna sakaskrá starfsmanna og láta þá gangast undir áfengis- og fíkniefnapróf.