Fara í efni

SBA-Norðurleið framlengir samstarf við handknattleiksdeild Þórs

SBA-Norðurleið og handknattleiksdeild Þórs á Akureyri hafa framlengt samstarf sitt um akstur meistaraflokks karla í útileiki liðsins á komandi leiktíð.

Samstarfið hefur gengið vel undanfarin ár og er SBA-Norðurleið ánægt með að halda áfram að styðja við starf handknattleiksdeildar Þórs og tryggja liðinu öruggar og þægilegar ferðir á leikjum utan Akureyrar.

„Við erum mjög ánægð með áframhaldandi samstarf við Þór. Það er mikilvægt fyrir okkur að styðja við íþróttastarf á Akureyri og við erum stolt af því að geta lagt okkar af mörkum með traustum og öruggum akstri liðsins,“ segir Gunnar M. Guðmundsson, framkvæmdastjóri SBA-Norðurleiðar.

SBA-Norðurleið óskar Þórsurum góðs gengis á komandi leiktíð og hlakkar til áframhaldandi samstarfs.