Fara í efni

SBA-Norðurleið í samstarf með Þór

Aðalgeir Axelsson, stjórnarmaður hjá knattspyrnudeild Þórs og Gunnar M. Guðmundsson, eigandi og fram…
Aðalgeir Axelsson, stjórnarmaður hjá knattspyrnudeild Þórs og Gunnar M. Guðmundsson, eigandi og framkvæmdastjóri SBA, handsala samninginn.

Knattspyrnudeild Þórs og SBA-Norðurleið hafa gert með sér samstarfssamning sem nær til yfirstandandi keppnistímabils í Bestu deildinni. Samningurinn felur í sér áframhaldandi akstur meistaraflokks karla í útileiki liðsins á komandi leiktíð og tryggir liðinu öruggar og faglegar samgöngur um landið.

Samstarfið byggir á sameiginlegum hagsmunum og metnaði til að styðja við öflugt íþróttastarf í heimabyggð. Með samstarfinu vill SBA-Norðurleið leggja sitt af mörkum til starfs Þórs á sama tíma og fyrirtækið styrkir tengsl sín við samfélagið.