Drangey 30. júní 2023
Sannkölluð ævintýraferð um heillandi náttúru og söguslóðir.






















































Ferðin hefst á Akureyri, farið með ökuleiðsögumanni til Sauðárkróks en þar er tekið stutt þægindastopp fyrir siglinguna út í Drangey. Eftir að komið er um borð í bátinn er leiðsögn í höndum heimamanna sem gjörþekkja sögu og lífríki eyjunnar.
Reikna má með að ferðin út í Drangey taki um fjórar klukkustundir. Sjálf siglingin er þægileg, tekur 30 mín hvora leið og oftar en ekki láta hvalir og selir sjá sig á leiðinni. Eyjan er einstök náttúruperla í miðju Skagafjarðar, nálægðin við fjölbreytt fuglalífi í bjarginu er mikil og þaðan er frábært útsýni yfir allan fjörðinn.
Áætluð koma til Akureyrar er um kl. 01:30.
Ferðaáætlun
Drangey - kvöldsigling
Brottför kl. 17:30 frá Akureyri.
- Áður en siglingin hefst er tími fyrir sjoppustopp á Sauðárkróki og stutta skoðunarferð um bæinn.
- Siglingin frá Sauðárkróki út í Drangey tekur um 30 mínútur. Leiðsögn um eyjuna er í höndum heimamanna.
- Skoðunarferðin um eyjuna tekur 2-3 klst.
- Áætluð koma til Akureyrar er um kl. 01:30.
Upphafsstaður
Hvað þarf að taka með
- Góða skó
- Hanska
- Fatnað sem hæfir veðri
- Nesti