Merkigil 22. júlí 2023
















































Söguganga, brottför frá Akureyri kl. 08:00.
Farið frá Akureyri vestur í Skagafjörð og fram Kjálka. Fyrsta stopp er við gamla bæinn á Tyrfinsstöðum en undanfarið hefur markvisst verið unnið að endurbyggingu torfhúsanna þar. Því næst er farið að norðurbrún Merkigils og gengið þaðan yfir gilið, heim að bænum Merkigili og svo yfir Monikubrú þar sem bíll bíður hópsins. Lengd göngunnar er um 8 km. Þeir sem það kjósa geta sleppt göngunni og farið með bílnum að Monikubrú og mögulega gengið eftir vegi á móti hópnum. Eftir þægindastopp í Varmahlíð er farið að Reykjafossi áður en haldið er af stað til Akureyrar.
Í ferðinni verður sagt frá svæðinu og ábúendum á Merkigili í Austurdal. Monika Helgadóttir húsfreyja er þjóðkunn persóna en Guðmundur G. Hagalín skrifaði ævisögu hennar sem var gefin út árið 1954.
Ferðaáætlun
Viðkomustaðir í ferðinni:
- Tyrfingsstaðir
- Merkigil í Skagafirði
- Varmahlíð
- Reykjafoss
Upphafsstaður
Hvað þarf að taka með
- Fatnað sem hæfir veðri og aðstæðum.
- Góða gönguskó.
- Göngustafi.
- Nesti og drykki fyrir daginn.
Tungumál leiðsögumanns
- Íslenska