Starfsumsókn
Bókari
SBA-Norðurleið leitar að aðila til að hafa umsjón með fjárhagsbókhaldi fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi með góða þekkingu á bókhaldi og uppgjörum sem vinnur af fagmennsku, frumkvæði og nákvæmni.
Um framtíðarstarf er að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 100%. Tekið verður á móti umsóknum á sba@sba.is og disa@sba.is til 10. mars nk. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsókn skal innihalda ferilskrá, upplýsingar um umsagnaraðila og kynningarbréf með rökstuðningi fyrir áhuga og hæfni til starfsins.
Allar frekari upplýsingar um starfið veitir Hjördís Úlfarsdóttir, skrifstofustjóri. disa@sba.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með fjárhagsbókhaldi og færsla bókhalds
- Innheimta, afstemmingar og undirbúningur uppgjöra
- Skil gagna og samskipti við endurskoðendur
- Umsjón með innsendum reikningum og samþykktarferli þeim tengdum
- Önnur verkefni í samráði við stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. viðskipta- eða bókhaldsmenntun
- Haldbær þekking og reynsla af bókhaldi og uppgjörum
- Góð almenn tölvukunnátta, þekking á DK bókhaldskerfi er kostur
- Samviskusemi og skipulagshæfni
- Jákvætt viðmót og góð samskiptafærni