Fara í efni

Starfsmaður á skrifstofu

SBA-Norðurleið leitar að öflugum og skipulögðum einstaklingi í sumarstarf á skrifstofu okkar í Hafnarfirði.

Við leitum að jákvæðum og ábyrgum aðila sem hefur áhuga á ferðaþjónustu og vill taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á skrifstofu. Starfið felur m.a. í sér almenn skrifstofustörf, þjónustu við viðskiptavini og aðstoð við daglega starfsemi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiðsla og svörun fyrirspurna
  • Samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila
  • Almenn skrifstofu- og skipulagsverkefni
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sjálfstæði í starfi og hæfni til að taka frumkvæði
  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð enskukunnátta
  • Hreint sakavottorð
  • Almenn ökuréttindi
  • Íslenskukunnátta áskilin

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á https://www.sba.is/is/um-okkur/starfsumsokn